betra form

Jæja þá er komin föstudagur aftur Wink ég elska föstudaga Grin 

Ég er samt búin að taka þá ákvörðun að fara í ræktina og keypti mér kort í dag Smile ég er að fara á námskeið í betra form hjá Hreyfingu og haldiði ekki að ég sé að fara klukkan 6:20 Á MORGNANNA !!!!Shocking  Já maður er að fara að vakna kl: 6 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga í TVO MÁNUÐI..     Já, hvað gerir maður ekki til þess að vera í góðu formi og jafnvél léttast aðeins.. Grin og svo borgaði ég þetta ekki einu sinni ég á svo æðislegan kærasta að hann borgaði þetta fyrir mig Grin happy

Já og svo var ég og mamma að eyða 38.900 kr í dag, keypti overlock og ég ætti að fá hana eftir ca: 2 vikur því hún var uppseld Angry en það þýðir ekkert að væla það, verð bara dugleg að læra þangað til ég fæ hana og þá get ég sokkið mér í hana þegar hún kemur án þess að fá samviskubit Wink 

Jæja ég ætla að hætta núna og fara að gera eitthvað Smile

 


ýmislegt

Jæja þá er sumarskólinn byrjaður og ekkert lítið sem maður þarf að lesa Errm þarf að klára 2 ritgerðir fyrir 28 júní. Er núna að klára fyrri bókina sem ég þarf að lesa fyrir þessar ritgerðir Woundering.

En ef einhver á glósur úr íslandsklukku eða sjálfstætt fólk, má hann endilega lána mér þær Grin, Ég ætla nú samt að lesa bækurnar, bara svona gott til þess að hafa til hliðar..

Það er nú bara fínt að vinna í lyf og heilsu, ég er bara að búa til ýmiskonar krem og spritt, við erum að búa til vörurnar sem eru merktar gamla apótekinu.

og svona í lokin ef einhver á og er til í að lána mér þá vantar mig þessar bækur Grin

íslenskar bókmentir frá 1550 - 1900  (kristinn kristjánsson)

sögur, ljóð og líf (heimir pálsson 1998)

þyrnar og rósir (kristján jóhann jónsson og fl 1999)

 


lukkudagur ??

Jæja í dag fann ég mér sumarvinnu, já ég er að fara að vinna í apóteki Grin byrja á morgun og vinnutíminn er frá 8 - 16, sem er bara gott Smile.

Svo var mér sagt upp ræstingonum í dag, og ég verð á launum þar næstu 2 mánuði Tounge.

Mér var nú samt boðið að hafa samband við hana ef mig vantaði eitthvað í vetur því henni langaði ekki að missa mig (og það vantar ekkert núna eins og er), en hún yrði að láta mig fara því þeir sem voru yfir í útibúinu sem ég var að skúra í, þeim líkaði ekki við mig.

Svo er maður byrjaður að lesa fyrri íslenskuna, þetta er ekkert smá mikið lesefni Angry en ég ætla bara að vona að maður nái þessu.

Smile


síðustu dagarnir í maí

Jæja þá er maí bara að verða búinn, og maður er farið að kíkja á skólabækur fyrir sumarskólann.

Já ég held að maður sé bara nokkur góður að fara taka sumarskóla... er að pæla í að taka ensku 303 og íslensku 403 og 503 og einnig spænsku 103.

Já heilar 12 einingar í sumar Grin Og svo er bara að vona að maður útskrifist með hvíta húfu í desember Tounge 

Ég og Pála fórum hálfa leið upp á esjuna í gær, þetta er nú frekar bratt.. .og svo þegar ég var búin að labba þetta þá fór ég að vinna og núna líður mér ekkert rosalega vel í hnjánum, ég bara veit ekkert hvað ég á að gera við þessi yndislegu hné... ætla að prufa fyrir næstu göngu hjá okkur að vera með teygjubindi eða eitthvað svoleiðis á hnjánum, athuga hvort manni líði betur í hnjánum með það.

Stefnana er svo að fara í fjöruna á fimmtudaginn og kíkja svo á smá pool,

en jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í dag

en endilega kvittið... Smile


einkunirnar komnar :)

Jæja þá er maður bara búinn að fá einkunirnar og þær voru sko ekki á verri endanum 

listir og menning         10

prjón og bútasaumur  10 

fatasaumur minni        9

fatasaumur stærri       9

hönnun                       7

spænska                    3

Já maður þarf víst að bæta sig aðeins í henni Smile en þar sem ég ætla að vera svo geggjað dugleg í sumar og taka sumarskóla þá reynir maður bara við hana aftur þar, ætla líka að taka íslensku 403 og ensku 303 og svo er mjög freistanid að taka einn áfanga í viðbót, Tounge en það kemur bara í ljós hvað maður gerir í þeim málum.

nú er bara eiginlega bara komið að því á mála elhúsið.. klára nefnilega að þrífa það í dag.

Er einnig að fara að skoða mótorhjólapróf.. þarf að komast að því hvað það kostar og svona, kannski að maður skelli sér í það í sumar Wink og steli svo hjólinu hans Helga til að fara á rúntinn í sumar, því ég á ekki efná að kaupa mér mótorhjól í sumar, kannski næsta sumar,

Svo að því að ég er búinn að breita vinnutímanum á ræstingonum þá er bara spurning að skella sér í ræktina á morgnanna ... það er ekkert smá freistandi en bara spurning hvort maður eigi efn á því, en það kemur allt í ljós um mánaðarmótinn.

Svo er Tommi búinn að kaupa sér nýjan bíl, hann keypti sér BMW árgerð 92, hann er svaka fottur, lítur út eins og nýr.

Jæja ég ætla að halda áfrám að þrífa...

endilega kvittið... 


prufutímar í ræktinni

Góðan daginn

Ég er búin að vera ekkert smá dugleg í dag, ég vaknaði rétt fyrir 6 í morgun og fór í ræktina. Ég fór í tíma í spinningu og vá hvað það var hressandi, og ég ætla svo að vakna á morgun og fara í eitthvað sem heitir Herinn það verður spennandi að fá að vita hvað það er.

Svo er ég bara að pæla ía ða kaupa mér kort og fara að gera þetta 5 daga vikunar Smile  Ég er svona hundrað sinnum hressari núna en aðra morgna, sem er bara gott. 

En jæja ég ætla að fara að kíkja á eldhúsið, reyna að klára það í dag.

þangað til næst ..... 


eldhúsið hálfnað

Jæja nú er bara kominn mánudagur og ég er búin að vera ekkert smá dugleg í dag, ég er búinn að taka til í hálfu eldhúsinu og breyta í skáponum og þrífa allar hillur og ofaná skáponum, á morgun verður restinn tekinn og ískápurinn og ofnin, og svo verður bara málað allt eldhúsið.Smile

Ég fór í dag og fékk mér gestakort hjá hreyfingu og það dugar fram á fimmtudag Tounge og það verður farið um 6 á morgnanna Grin já maður ætlar að vera duglegur ætla mér að missa nokkur kíló, er nú samt ekki búin að ákveða hversu mörg þau eiga að fjúka ... Tounge en það verður að fara slatti.. 

Svo fer maður að skoða í hvaða skóla maður fari í sumar, fb, fá, eða versló. En það kemur allt í ljós á morgun. 

Einnig kom ein býfluga í heimsókn í dag þegar ég fór í vinnuna og hún er nú bara týnd núna, ég er búinn að pæla mikið í því hvar hún sé, en hún finnst ekki .. en ég vona að hún sé bara farinn út aftur því mig langar ekkert að hafa hana hérna inni.

en ég ætla að hætta núna.

bæbæ 


prófin búinn :)

jæja þá er bara kominn 10 maí, og það er vika í einkunnir. 

Núna er ég búinn í prófonum var í því síðasta í dag, það voru 12 blaðsíður og 11 ritgerðarspurningar, ég var búinn á því í hendinni þegar ég labbaði út og ég var líka mjög heppin að hafa sótt um lengri próftíma því ég notaði eiginlega allan aukatíman.

Svo er maður enþá að pæla í hvort maður eigi að fara í sumarskóla og taka 3 fög og ná að útskrifast sem stúdent í desember. Það væri samt fínt að útskrifast einu sinni í desember, er nú að fara útskrifast í 3 skiptið núna í maí.

Ég er ekki enþá komin með neina sumarvinnu, og ef ég fæ enga þá ætla ég bara að gera íbúðina fína, er smá byrjuð inni í eldhúsinu þarf að pússa þar á morgun og spasla aftur, þrífa svo skápa og ískáp og þá getur maður farið að mála Grin
Jæja ég er bara ekki að nenna að blogga meira í kvöld, ætla að horfa á lost og c.s.i því ég misti af því á mánudaginn, var nefnilega að passa Thomas og Snædísi

blogga aftur seinna Tounge

endilega kvittaðu

 


síðustu dagar ...

Jæja þá er bara komin maí, og maður búinn að fá útborgað... en enga sumarvinnu Errm, þannig að það er spurning hvað maður gerir í sumar ... Ég er nú samt að pæla í að fara í sumarskóla og taka 2 áfanga þar íslensku 403 og spænsku 103 / 203 því þá ætti ég að geta útskrifast sem stúdent í desember 2007 Grin og þá verður sko haldið útskriftar partý í 4 sinn ( já minns er duglegur að útskrifast... )
Já ég segi í 4 sinn því ég er að útskrifast núna í maí (minnir 23 maí) og þá útskrifast ég af hönnunarbrautinni... og er ég að pæla í að bjóða bara nokrum í grill og bjór Smile þann laugardaginn 26 maí. Endilega látið mig vita ef einhver langar að koma.
Ég skilaði öllum verkefnonum mínum í dag .. og vá hvað það tók langan tíma að gera þau öll.. ég prjónaði á mánudagskv. og kláraði svo kjólinn á þiðjudaginn, svo á þriðjudagskvöld þá gerði ég allt sem ég gat í bútasaumteppinu og verkefnin fyrir fat.. og ég var að vinna í þessum verkefnum í alla nótt og eitthvað framm að morgunin. þegar ég langðist loksins upp í rúmið þá var klukkan að verða : hálf 11 (þá var ég búnn að vaka í meira en sólahring því ég vaknaði kl:9 um morgunin 1 maí. ). vaknaði svo í um fjögurleitið og fór að skúra, svo varð maður auðvitað að ganga frá eftir sér í stofunni... þannig að stofan er bara þokkalega hrein núna Wink 
 
En jæja ég ætla að hætta að blogga núna og fara að gera eitthvað.
 
hafið þið góðan dag 
 
endilega kvitta...  

verkefni

Jæja nú er síðasti skóladagurinn búin Grin, en ég er nú samt ekki búinn með öll verkefnin og fékk því frest til miðvikudag. Þannig að núna verður maður að vera duglegur að klára það sem maður á eftir, ég gat nú samt skilað einhverju. þannig að núna verður maður að vinna í verkefnonum sem eru eftir. Ég kláraði kjól í dag sem ég var að gera fyrir hönnun og það tók ekkert smá langan tíma að gera hann .. því perlurnar sem eru í kjólum eru handsaumaðar í hann og það tók nú bara heilt kvöld Pinch 

Svo þarf maður að vera duglegur að prjóna ( ég er nú samt að fá ógeð að prjóna mér er svo illt í puttonum eftir að hafa verið að prjóna 4 kvöld í þessari viku.)

Þannig að þið sjáið að það er ekkert að gerast hjá mér næstu daga nema að læra... og skólinn er samt búinn Pouty 

En mig vantar enþá sumarvinnu og ef þið vitið um einhverja þá meigið þið láta mig vita. Smile


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

hi

Höfundur

Christín
Christín
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...hmdv_209379
  • ...oss_wnyhmdv
  • kjóll 001
  • kjólinn
  • þetta er framaná kjólnum á hálsmálinu

bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 170

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband